Höfuðborgarstofa

Höfuðborgarstofa tók til starfa í ársbyrjun 2003 og sinnir hún þríþættum verkefnum fyrir hönd Reykjavíkurborgar; rekstri Upplýsingamiðstöðvar ferðamanna í Reykjavík (UMFR), almennum ferða- og kynningarmálum Reykjavíkur auk þess að bera ábyrgð á skipulagi og framkvæmd ýmissa lykilviðburða á vegum borgarinnar, s.s. Vetrarhátíðar, Menningarnætur, Aðventuhátíðar ofl. og vera ráðgefandi fyrir skipuleggjendur stórra viðburða í borginni.

Með stofnuninni undirstrikar Reykjavíkurborg aukna áherslu á mikilvægi ferða- og markaðsmála fyrir borgina í heild. Hjá miðstöðinni hefur orðið til nýr vettvangur fyrir samstarf á vettvangi ferðaþjónustu. Skýr farvegur fyrir ferða- og kynningarmál í tengslum við viðburðaskrifstofu skapar jafnframt nýja möguleika í vöruþróun t.d. á sviði menningar- og heilsutengdrar ferðaþjónustu og er því mjög þýðingarmikið framlag til að styrkja stöðu Reykjavíkur sem höfuðborgar Íslands í samkeppni á alþjóðavettvangi.

Frá 1. september 2006 hefur Höfuðborgarstofa haft umsjón með þekkingarheimsóknum til borgarinnar. Þekkingarheimsóknir eru skipulagðar heimsóknir þar sem tekið er á móti erlendum aðilum sem vilja kynna sér starfsemi og sérstöðu borgarinnar. Tilgangur þekkingarheimsókna er að gefa öðrum tækifæri á að kynnast og nýta reynslu Reykjavíkurborgar á hinum ýmsu sviðum til að ná betri árangri og/eða að kynna sér innleiðingu nýrra aðferða í rekstri.


Starfsfólk

Auður Halldórsdóttir, upplýsingafulltrúi

Dóra Magnúsdóttir, markaðsstjóri ferðamála

Drífa Magnúsdóttir, verkefnastjóri Upplýsingamiðstöðvarinnar

Einar Gylfason,verkefnastjóri þekkingarheimsókna

Guðmundur Birgir Halldórsson, verkefnastjóri viðburða

Heiðrún Hákonardóttir, skrifstofustjóri

Juilo Cesar Leon Verdugo, upplýsingafulltrúi

Karen María Jónsdóttir, verkefnastjóri viðburða

Kolbrún Kristín Karlsdóttir, vefstjóri

María Reynisdóttir, verkefnastjóri ferðamála

Sif Gunnarsdóttir, forstöðumaður

Ingólfsnaust
Aðalstræti 2
101 Reykjavík
Sími: 590 1500
Fax: 590 1501

Netfang: info@visitreykjavik.is.
Veffang: www.visitreykjavik.is.


Upplýsingamiðstöð ferðamanna
Ingólfsnausti

Sími 590 1550
Fax: 590 1501
Netfang info@visitreykjavik.is


Back

Geysishús