Stór-Reykjavíkursvæðið samanstendur af sjö sveitarfélögum sem telja u.b.b. 200.000 íbúa, eða um tvo þriðju landsmanna.
Höfuðborgarsvæðið er ekki skýrt afmarkað frá sveitunum í kring – ólíkt öðrum evrópskum borgum. Íbúar sveitarfélaganna sjö búa oftar en ekki í einum bæ en sækja vinnu og tómstundir í öðrum. Því er oft talað um höfuðborgarsvæðið sem eitt svæði þar sem íbúar og gestir, innlendir sem erlendir, lifa og hrærast án nokkurra pólitískra landamæra.
Við hvetjum gesti okkar til þess að ferðast utan miðborgar Reykjavíkur og upplifa fjölbreytta afþreyingu sem höfuðborgarsvæðið hefur upp á að bjóða, s.s. heimsókn á Bessastaði, frábærar sundlaugar, heillandi fuglalíf, golfvelli, gönguleiðir og hestaferðir.