Gistihús

See all

Room4U Guesthouse

Address:
Post code:
Efstasund 83
104
Tel:
Fax:
Send email:
Website:
553 7045 / 820 7210

room4u@iceland2000.com
http://gisting.iceland2000.com
Bus routes:

Room4U

Hjá gistiheimilinu Room4U eru í boði fjögur herbergi í nýlega uppgerðu húsi í rólegri götu í eldri hluta borgarinnar. Gistingin er á hagstæðu verði. Herbergin eru nokkuð stór, björt og notaleg. Gestir deila einu baðherbergi með sturtu og þvottavél en hægt er að þurrka þvott bæði innanhúss og utan. Fullbúið eldhús er á staðnum. Í garðinum eru bekkir og borð og þar er hægt að matast í góðu veðri. Handklæði og sængurföt fá gestir á staðnum en þeir sem dvelja lengi þurfa að annast þrif á slíku sjálfir.

Gistiheimilið er staðsett í nágrenni Laugardalsins. Í 5 mín fjarlægð er lítil matvöruverslun og 10 mín göngufjarlægð er stórmarkaður. Það tekur um 10 mín að taka strætisvagn niður í miðbæ, vagnarnir aka á 30 mín fresti.

Gistiheimilið er reyklaust.

Interactive map


Back