Gestakort Reykjavíkur

Með Gestakorti Reykjavíkur er íbúum borgarinnar og gestum hennar gert enn auðveldara að njóta þess öfluga menningarlífs sem borgin hefur upp á að bjóða. Handhöfum kortsins er veittur aðgangur að helstu söfnum á höfuðborgarsvæðinu og öðrum áhugaverðum stöðum. Einnig fá korthafar ókeypis aðgang að interneti og í sundlaugar Reykjavíkur og síðast en ekki síst gildir Gestakortið ótakmarkað í Strætó. Gestakortið er til sem 24, 48 og 72 tíma kort.
 

Gestakortið veitir frían aðgang að

- Strætó á svæði 1
- Öllum sundlaugum í Reykjavík (7)
- Þjóðminjasafni
- Þjóðmenningarhúsi
- Listasafni Reykjavíkur - Hafnarhús
- Listasafn Reykjavíkur - Kjarvalsstaðir
- Listasafn Reykjavíkur - Ásmundarsafn
- Reykjavík 871+/-2 Landnámssýningin
- Árbæjarsafn
- Víkin sjóminjasafn
- Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn
- Ferjan í Viðey
- Internetaðgangur í Upplýsingamiðstöð ferðamanna

 

Verð 2012

24 tíma kort: 2.400 kr
48 tíma kort: 3.300 kr
72 tíma kort: 4.000 kr


Sölustaðir Gestakorts Reykjavíkur

- Upplýsingamiðstöð ferðamanna Aðalstræti 2
- Iceland Travel Assistance á Hótel Reykjavík Natura - Hótel Nordica og Radisson Hótel Saga
- Íslenskur ferðamarkaður
- Trip.is, Laugavegi 54
- Umferðarmiðstöðin BSÍ
- Upplýsingamiðstöð ferðamanna í Hafnarfirði
- Farfuglaheimilið í Laugardal og Farfuglaheimilið á Vesturgötu
- Tjaldsvæðið í Laugardal
- Þjóðminjasafnið
- Víkin sjóminjasafn
- Hlemmur

 

Afslættir:

Elding Hvalaskoðun - 10% afsláttur af öllum ferðum
Fiskfélagið - 10% af öllum réttum á matseðli
Harpa - 10% af skoðunarferð um Hörpu
Handprjónasamband Íslands- við kaup á handprjónaðri peysu fylgja Varma sokkar með
Húfur sem hlæja - 10% afsláttur
Iceland Excursions - 25% afsláttur af AH10, kynnisferð um stór-Reykjavíkursvæðið
Reðursafn Íslands - 10% afsláttur af aðgangseyri
Íshestar - 15% afsláttur af Lava tour kl. 14:00
Listasafn Íslands - 10% afsláttur af aðgangseyri
Netagerdin - 10% afsláttur
Sögusafnið - 10% afsláttur af aðgangseyri
Season Tours Reiðhjól og vespur- 10% afsláttur af ferðum
Sérferðir - 10% afsláttur af ferðum
Volcano House - 20% afsláttur af kvikmyndasýningu 

Góða skemmtun í höfuðborginni!


Back

align=left