Upplýsingamiðstöð ferðamanna er til húsa í fallegu gömlu timburhúsi við Aðalstræti í Reykjavík. Þar færð þú allar nýjustu upplýsingar um allt það sem er í boði fyrir gesti Reykjavíkur. Vinalegt starfsfólk veitir upplýsingar um flest milli himins og jarðar og aðstoðar þig við bókanir. Í miðstöðinni finnur þú líka bæklinga um fjölbreytta afþreyingu og ferðamöguleika víðsvegar um landið.
Fyrir hagsýna bendum við einnig á Gestakortið, afsláttarkort sem ætlað er bæði erlendum og innlendum gestum, er veitir aðgang fjölbreyttri þjónustu og menningarviðburðum á hagstæðu verði. Kortið gildir í 24, 48 eða 72 tíma og með því færðu meðal annars frían aðgang að öllum sundlaugum í Reykjavík, mörgum söfnum og fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Aukinheldur ferðast þú frítt með strætisvögnum Strætó innan höfuðborgarsvæðisins. Þú getur keypt Gestakortið í Upplýsingamiðstöðinni og á flestum hótelum í Reykjavík.
Starfsfólk okkar er sérfrótt um flest allt er tengist ferðalögum um Ísland. Við liðsinnum þér með ánægju og hlökkum til að sjá þig. Sæktu okkur heim í hjarta borgarinnar eða sendu okkur línu.
Upplýsingamiðstöð ferðamanna í Reykjavík
Aðalstræti 2
101 Reykjavík
Sími: 590 1550
Fax: 590 1501
Tölvupóstur: info@visitreykjavik.is
Þjónustutími:
1. júní - 15. september
Frá kl. 8:30-19:00 alla daga
16. september - 31. maí:
9:00 - 18:00 á virkum dögum
9:00 - 16:00 á laugardögum
9:00 - 14:00 á sunnudögum

Back