Gullkúnst Helgu býður upp á fyrsta flokks þjónustu og glæsilegar vörur fyrir kröfuharða viðskiptavini. Gullkúnst Helgu sérhæfir sig í einstökum og fallegum handgerðum skartgripum.
Gullkúnst Helgu minnir að mörgu leyti meira á gallerí en skartgripaverslun. Þar eru smíðaðir hráir og grófir en líka en líka tígulegir og margslugnir gripir sem tekið er eftir. Íslenskir steinar og hraun eru blandaðir silfri og gulli.
Samkvæmt eigandanum og gullsmiðnum Helgu eru níu af hverjum tíu gripum smíðaðir á staðnum og þar er lagður mikill metnaður í persónulega þjónustu við viðskiptavini sem oft er boðið baka til, til að sjá listamennina að störfum.