Thermal Pools

See all

Sundhöll Hafnarfjarðar

Address:
Post code:
Herjólfsgata 10
220 Hafnarfjörður
Tel:
Fax:
Send email:
Website:
555 0088

hafnarfjordur@hafnarfjordur.is
http://www.hafnarfjordur.is
Bus routes:
22
Sundhöll Hafnarfjarðar

Sundhöll Hafnarfjarðar var fyrsta sundlaugin í Hafnarfirði. Í fyrstu var aðeins um útilaug að ræða við Krosseyrarmalir og var hún tekin í notkun árið 1943. Það var síðan árið 1953 sem Sundhöll Hafnarfjarðar var tekin í notkun eftir að byggt hafði verið yfir útilaugina.

Sundhöllin státar af innilaug sem er 25 metrar að lengd og 8.7 metrar í breidd og í dýpri enda laugarinnar er hún 3.2m djúp. Tveir rúmgóðir heitir pottar eru í afgirtum garði við bygginguna og eru þeir með öflugum nuddtækjum sem njóta mikilla vinsælda. Jafnframt eru í lauginni í bæði karla og kvennaklefum sérstakir saunaklefar sem eru þeir einu sinnar tegundar hjá sundstöðunum í Hafnarfirði.

Sundhöllin er þekkt fyrir sitt rólega andrúsmloft. Laugin er mikið notuð af eldri borgurum og íbúum í nágreinni laugarinnar, jafnframt sem Sundfélag Hafnarfjarðar er með hluta af sínum æfingatímum í lauginni og nemendur í Víðistaðaskóla og Engidalsskóla sækja þangað í skólasund.

Afgreiðslutími
Virka daga 6:30-19:00
Lokað um helgar

Interactive map


Back