Heimasíðan Visit Reykjavik geymir upplýsingar fyrir ferðalanga í Reykjavík, innlenda sem erlenda. Síðunni er haldið úti af Höfuðborgarstofu sem starfar á vegum menningar- og ferðamálasviðs Reykjavíkurborgar. Við fögnum öllum ábendingum um innihald og áherslur síðunnar.
Höfuðborgarstofa rekur einnig Upplýsingamiðstöð ferðamanna í Aðalstræti 2 í Reykjavík.
Auk heimasíðunnar sendir Visit Reykjavík einnig út rafrænt fréttabréf og heldur úti síðu á samskiptavefnum Facebook.
Ferða- og markaðsmál:
Markmið Höfuðborgarstofu er að styrkja stöðu Reykjavíkur sem athyglisverðs áfangastaðar í alþjóðlegu samhengi, meðal annars með því að halda á lofti sérstöðu borgarinnar sem felst í hreinni orku, óspilltu umhverfi, öryggi og iðandi menningarlífi. Kjörorð Reykjavíkur eru „Hrein orka”.
Markaðsdeild Höfuðborgarstofu vinnur náið fjölmörgum samstarfsaðilum að því að kynna Reykjavík sem spennandi áfangastað allt árið um kring. Á síðunni geta skipuleggjendur og blaðamenn nálgast upplýsingar, ábendingar, bæklinga og myndir sér að kostnaðarlausu. Sjá nánar undir liðnum „Faglegt” á forsíðunni.
Uppákomur:
Höfuðborgarstofa ber ábyrgð á skipulagi og framkvæmd ýmissa lykilviðburða á vegum borgarinnar, s.s. Safnanætur, Menningarnætur, ofl. og er ráðgefandi fyrir skipuleggjendur stórra viðburða í borginni.
Upplýsingar um viðburði í Reykjavík er að finna hér á síðunni, bæði í viðburðadagatali og undir liðnum „Hátíðir”
Gestakort Reykjavíkur:
Með Gestakorti Reykjavíkur er íbúum borgarinnar og gestum hennar gert enn auðveldara að njóta þess öfluga menningarlífs sem borgin hefur upp á að bjóða. Handhöfum kortsins er veittur aðgangur að helstu söfnum á höfuðborgarsvæðinu og öðrum áhugaverðum stöðum. Einnig fá korthafar ókeypis aðgang að interneti og í sundlaugar Reykjavíkur og síðast en ekki síst gildir Gestakortið ótakmarkað í Strætó. Gestakortið er til sem 24, 48 og 72 tíma kort.
Nánari upplýsingar:
Upplýsingamiðstöð ferðamanna
Aðalstræti 2
101 Reykjavík
Sími: 590 1550
Fax: 590 1501
Tölvupóstur: info@visitreykjavik.is
Þjónustutími:
1. júní - 15. september
Frá kl. 8:30-19:00 alla daga
16. september - 31. maí:
9:00 - 18:00 á virkum dögum
9:00 - 16:00 á laugardögum
9:00 - 14:00 á sunnudögum
Back