Hótel Plaza er nútímalegt og nýuppgert hótel í elsta hluta borgarinnar, við Ingólfstorg. Hótelið er þriggja stjörnu og býður afslappað andrúmsloft og úrvalsþjónustu við allra hæfi.
Á hótelinu eru 180 vel skipulögð herbergi, innréttuð í norrænum stíl. Hvert herbergi er með öllum nútíma þægindum s.s. sjónvarpi, sturtu, hárþurrku, te og kaffivél og aðgangi að fríu interneti.
Frá hótelinu er stutt í fjölda veitingastaða, kaffihúsa og verslana.