Sveitarfélagið Álftanes liggur á lágu nesi suður af Reykavík, þar búa tæplega 2500 íbúar. Sögu bæjarins má rekja aftur í aldir en þar hefur hefur löngum verið höfuðból embættis- og merkismanna. Á nesinu er býlið Garðar, kirkjustaður og fyrrum prestssetur. Í Gálgahrauni mun hafa verið aftökustaður sakamanna fyrrum. Yst á Álftanesi er Skansinn, en þar var byggt vígi ef sjóræningjar skyldu leggja þangað leið sína. Bessastaðahreppur varð til árið 1878, ásamt Garðahreppi, þegar Álftaneshreppi var skipt í tvennt. Þann 17. júní 2004 var nafni hreppsins breytt í sveitarfélagið Álftanes.
Á Álftanesi finna allir gönguleiðir við sitt hæfi en svæðið er meðal annars þekkt fyrir mikið og fjölbreytt fuglalíf. Álftanesið er viðkomustaður farfugla og mikilvægt varpland og þar gefst einstakt tækifæri til að fylgjast með komu farfugla að vori, varpi á sumrin, undirbúningi að langflugi á haustin og margvíslegum fjöru- og sjófuglum á vetrum. Leirur og aðrar fjörur á nesinu eru áhugaverðar og aðgengilegar á öllum tímum árs.
Álftanes er líka mikilvægur staður í hugum margra Íslendinga því þar eru Bessastaðir, aðsetur forseta Íslands. Göngutúr í nágrenni Bessastaða, sem tugþúsundir gesta heimsækja á hverju ári, er eftirminnilegur og hringur á golfvellinum er einnig frábær leið til útiveru. Fátt er svo eins ljúft og sundsprettur eða afslöppun í heitum potti og gufu í þægilegu umhverfi Álftaneslaugar.
www.alftanes.is